Nýr fjölskyldumeðlimur.

ýmislegt hefur drifið á daga mína síðan ég bloggaði síðast, ég og Kjartan eru búin að fá einkunnirnar okkar í skólanum og náðum bæði með glæsibrag..stolt af því. Kjartan fer svo að vinna fljótlega, það ætti ekki að vera neitt vandamál fyrir hann að fá vinnu..en hann á bara lokaverkefnið sitt eftir í skólanum, þegar hann hefur lokið því þá útskrifast hann sem meistari í tölvunarfræði, það varður væntalega á sama tíma og ég klára skólann minn og þá verður kannski haldin smá útskriftarveisla hérna heima.

Jólin voru eins og best geta orðið með jólasnjó og öllu. Það fjölgaði líka í fjölskyldunni um jólin.....já  við eignuðumst gullfallega dóttur sem heitir Ella og er lítill hvolpur að Papillon kyni og það er búin að vera eintóm hamingja með hana, hún er ósköp ljúf og góð, vælir eða geltir ekkert, vill bara kela, hún liggur einmitt í kjöltunni á mér núna, og það er dáldið erfitt að skrifa með hana svona hálf liggjandi yfir takkaborðinuKissing SL370069

EllaPose Ég skelli nokkrum myndum að henni hérna inn. En það verður lítið bloggað hjá mér í vetur á meðan ég er að klára skólann. Þetta blessaða blogg er smá tímaþjófur. jæja núna þarf ég að fara með hana Ellu okkar til dagfinns dýralæknis, hún er víst með smá kvef litla krílið. SL370092


Í jólaskapi

Ég er búin að vera geðveikt myndarleg þessa dagana, jólaskreytingarnar komnar upp og smákökur í ofninum. Ég er líka búin að kaupa flestar jólagjafirnar, vil samt geyma einhverjar þangað til rétt fyrir jólin, mesta stemmingin er að labba laugaveginn á þorláksmessu og kaupa jólagjafir og ég ætla að njóta þess.

Þetta er líka tími jólahlaðborða og ég og minn maður fórum á eitt slíkt um helgina og fórum hvorki meira né minna fjórar ferðir. Þarna smakkaði ég hreindýrakjöt í fyrsta skipti og ég verð að segja að mér fannst það ekkert spes...kannski var ég bara að búast við einhverju betra.

Svo auðvitað á morgun á ég eftir að hlaupa og hlaupa og hrína eins og grís á hlaupabrettinu í ræktinni til að ná af mér purusteikinni hehehehe!

Annars gengur allt sinn vanagang hérna heima, Kjartan er byrjaður í prófum núna og ég ennþá að bíða eftir niðurstöðu úr mínum. Ekkert er að gerast í íbúðarmálum eins og er, það eru tvær íbúðir í húsinu (okkar og önnur) ókeyptar. Fjárfestunum finnst við vera að byðja um allt of hátt verð fyrir hana. Það eru greinilega misjafnar skoðanir á því hvað er sanngjarnt verð, okkur finnst þetta gjafverð fyrir menn sem eru full færir um að borga og eiga eftir að græða margfalt á því að kaupa litlu íbúðina okkar....svo við bara bíðum! Það liggur ekkert á og við þurfum ekki að flýta okkur út, það er um nóg annað að hugsa.


Búin í prófum

Ég kláraði seinast prófið mitt núna á mánudaginn og heild mér hafi gengið svona þokkalega í þeim, þori samt ekki að segja að ég nái 7 í þeim öllum, þá er ég sérstaklega í vafa með fyrsta prófið.

En það var engin pása á lærdómnum, því annar hluti námsins byrjaði bara strax á miðvikudaginn. Núna er ég semsagt að læra viðskiptafræðihlutann og ég verð bara að segja að lögfræðin á bara miklu betur við mig. Ég hef aldrei verið góð í stærðfræði, mig vantar líka bara grunninn fyrir þetta og ég hreinlega man ekkert eftir þessari litlu stærðfræði sem ég lærði í skóla, svo þessi hluti á eftir að vera aðeins erfiðari fyrir mig en sá fyrri. Ég held ég velji mér lesfög í framtíðinni.

Þótt að prófin séu búin þá er sko ekki búin að vera nein lognmolla á þessu heimili. Skólinn er nátturulega byrjaður aftur á fullu, í gær var svo starfsdagur í vinnunni og þar fékk ég að hlíða á fyrirlestur með honum Chris Gardner, en hann er er sá sem myndin Persuit of happiness var gerð eftir. Lífshlaup þessa manns er alveg ótrúlegt.....hann er verðbréfamiðlari og á meðan hann var að reyna að koma sér áfram á þeirri braut var hann heimilislaus á götum San Fransisco með 14 mánaða gamlan son sinn (í myndinni er hann 5 ára)....það var einkar ánægjulegt að hlusta á hann tala um þessa lífsreynslu sína og þetta peppaði mann allan upp í að gera vel.

Í dag á svo að læra, ég þarf svo að spíta í lófanna með þessa stærðfræði því að í kvöld er matarboð hérna heima.

P.S. ég var líka að byrja í ræktinni og skellti mér í powerjoga, mín er bara svo aum og stirð og jafnvægislaus að sjötugur kallmaður sem var við hliðina á mér, horfði á mig og sagði...þetta kemur allt... pínu vandræðalegt.


Próf!

Jæja gott fólk þá er fyrsta prófið mitt afstaðið og ég held að mér hafi bara gengið þokkalega...gat svarað öllum spurningum og svoleiðis það er samt annað mál hvort ég svaraði þeim rétt, en það var ein spurning þarna sem var bara alveg út í hött. Hún var einhvernveginn svona:

Skilgreinið megin sjónarmið og reglur í kröfuábyrðum???

HHHAAA! Er einhver þarna úti sem skilur þessa spurningu án þess að lýta í bók! Ég bara spyr! Mér þætti gaman að sjá smá komment um þetta!

Það allra versta er að þessi spuning gildir 20% af prófinu, ég skrifaði náttúrulega bara allt sem ég vissi um kröfuábyrð til að hitta mögulega á rétt svar, og það versta var að þegar kennarinn kom til að útskýra fyrir mér spurninguna, varð ég bara ennþá áttavilltari og sá það að þessar 3 blaðsíður sem ég hafði skrifað voru ekki einu sinni í áttina að réttu svari!

En ég verð víst bara að vona að ég rétt sleppi í gegn með 7 í einkunn, en það er lámarkseinkunn.

Jæja best að halda áfram að læra fyrir næsta próf en það er í kröfurétti og félagarétti.

Bless í bili!


Rauðka

Ég leit á dagatalið áðan og sá að það eru bara örfáar vikur til jóla...huum ég er bara farin að hlakka til! Þetta verða fyrstu jólin í 7 ár sem ég er ekki að vinna í verslun um jólin og það er ekkert djók hversu mikið álag er á verslunarfólki um jólin, svo ég held ég eigi eftir að njóta jólanna betur núna. Það eru bara 2 vikur í fyrstu prófin og þau verða búin um miðjan nóvember, þá getur maður bara byrjað að baka og svona, fyrsta skipti sem ég geri það fyrir jólin og svo get ég bara verslað jólagjafir í rólegheitum...já...ég ætla að njóta jólanna, slaka á og hafa það gott.

Ég fór í klippingu og litun í gær og er orðin rauðka! og verð bara að segja að ég er bara helvíti flott svona, þó ég segi sjálf frá, það var kominn tími til að lappa upp á sig, ég var farin að morkna hérna yfir skólabókunum, svo hef ég líka ákveðið að það sé kominn tími til að skella sér í ræktina og byrja að hreyfa sig, þetta gengur ekki lengur....þambandi kók og borðandi snakk á hverju kvöldi! Maður verður víst ekki heilbrigður á því.

Annars hef ég ekki verið að gera mikið annað en að vinna og læra, ég líka dáist að fólki sem á börn og er að gera það sama, ég skil ekki hvernig það hefur hefur tíma að komast yfir þetta allt saman, hvað þá ungar einstæðar mæður sem eru að klára menntaskóla eða háskóla og eru að vinna og reka heimili og finna tíma til að læra. Ég veit um eina sem vaknar á nóttunni til að læra af því þá fær hún sem mest næði...er þetta hægt! Það hlítur að vera tímaspursmál hvenær álagið er bara of mikið.

Allavega hrós til ykkar sem eru að gera þetta allt saman!


Ungbarnasund

Kíkið á þetta!! Þetta er alveg ótrúlegt!!


Til sölu

Ég á ekkert líf og enga vini.....fólk dirfist ekki lengur að hringja í mig þar sem, ég er annað hvort í vinnunni eða að læra og þar að auki er ég örugglega hundleiðinleg þar sem ég hef ekkert að tala um nema vinnuna eða lærdóminn...í kvöld er ég t.d. búin að vera að lesa um kröfurétt....úff leiðinlegt, en ég er hinsvegar staðráðin í að ná þessu prófum og þá þarf maður víst að læra á kostnað skemmtilegra lífernis.

Íbúðin er líka komin á sölu..jabb, hér verður væntanlega byggður verslunarkjarni, þetta breytir ekki miklu fyrir okkur, ætluðum hvort sem er að selja og kaupa okkur aðra betri, þessi er sosum ekki slæm en þegar maður er um þrítugt og býr í íbúð sem lítur út fyrir að vera fyrir 20 ára og yngri þá er kominn tími á breytingar, eiginlega löngu kominn tími en þetta hefur alltaf tafist á meðan Akil er í skólanum svo þessar breitingar á miðbænum koma bara vel út fyrir okkur, eini gallinn er kannski að mér finnst ekkert áhugavert á sölu.

Þegar við svo loksins flytjum  ætla ég að fá mér hund. Ég er farin að láta eins og ófrísk kona, byrjuð að kaupa allskonar hundadót og hundarúm, fyrir væntanlegan hund. Ég veit ekkert betra en að eiga gæludýr, þau bæta líf manns og gera mann glaðari og rólegri og gefa manni ómælda og skilyrðislausa ást, get ekki beðið eftir þessu öllu saman.


Kroppkökur og Sushi

Tíminn er svo fljótur að líða hérna heima í vinnunni og skólinn byrjaður á fullu, allt komið í sama far og fyrir ferðina, líka bara kominn vetur eiginlega, skítakuldi og rigning finnst mér...ja það er samt ágætt að vera kominn heim. Ég er búin að mæta í fyrstu 2 tímana í skólanum og líkar mjög vel, brjálæðislega hröð yfirferð samt og maður þarf að vera duglegur að læra og beita sig miklum aga til að meika þetta, kennarinn sagði svona í smá gríni að þessir 2 tímar jöfnuðust á við fyrstu 8 mánuðina í lögfræði í Háskólanum. Já, ég á væntanlega ekki eftir að blogga oft þessa dagana enda er algjört make it or brake it í skólanum, maður verður að fá 7 í meðaleinkunn til að standast próf og hraðinn er rosalegur.

Hann Akil minn átti líka afmæli í gær, minn bara orðinn 31. Úff tíminn líður, fyrr en varir verður maður orðinn hundgamall. Það voru kökur og kræsingar í boði hjá tengdó...hún er líka ótrúlegur kokkur, fyrir okkur sex var brauðterta, kjötbollur, sænskar kroppkökur, sushi, rjómaterta og ávaxtakaka í matinn nammi namm og auðvitað var allt hámað í sig af bestu list.

Við erum líka búin að standa í stórræðum hérna heima, flytja húsgögn til og frá, breyta og bæta....og alltaf að hallast meira og meira að því að selja litlu íbúðina okkar og flytja rétt fyrir utan miðbæinn...í hlíðarnar eða nálægt laugardalnum..mér finnst það svo kósí svæði, en þetta verður væntanlega ekki alveg strax, kannski í byrjun næsta árs vona ég....þetta eru bara nokkrir mánuðir í viðbót!!!


Indland er geðveikt land

Þá er fyrsta deginum í vinnunni lokið eftir langt frí og ég er ennþá í skýjunum eftir ferðina og hef ekki náð jarðtengingunni og það verður örugglega svolítið í það að ég nái daglegri rútínu. Ferðin var náttúrulega bara skemmtileg og Indland er geðveikt land, maður sveiflast fram og til baka að finnast þetta besta land í heimi og versta land í heimi, fólksfjöldinn, mengunin, hitinn, fátæktin og spillingin og svo aftur á móti  litrík menning, góður matur og skemmtilegt fólk maður sveiflast eiginlega frá því að vera hugfanginn að menningunni til að lánga að reita af sér hárið af pirringi yfir óskipulagi og seinagangi.

IMG_1008 Þótt að ég hafi verið í mánuð úti og hrikalega gott að koma heim til Íslands myndi ég ekki hika við að fara aftur. Ef einhver er að fara þangað út þá mæli ég með að plana ferðina mjög vel og reikna með mikill tími fari í lestir og að vera á ferðinni. Ágætt er að hafa í planinu að komast í sturtu allavega annan hvern dag og að fá að skoða hótelherbergin áður en þú tekur þau á leigu, spurðu um hluti eins og vestræn klósett, klósettpappír, heitt vatn og loftræsingu þetta eru ekki sjálfsagðir hlutir þarna. Ágætis hótel geta kostað frá 500 rúbíum upp í 3000 rúbíur og þau sem kosta meira þurfa ekki endilega að vera betri. Norðmennirnir sem við hittum t.d leigðu sér hótelberbergi og á leiðinni upp með töskurnar sína mættu þau manninum sem var að skila lyklinum af sama herbergi, hótelstjórinn henti svo laki fyrir þau á rúmið og spreyjaði lyktareyði í loftið og sagði...gjörið svo vel.

Svona hlutir eru mjög algengir á Indlandi og sem ferðamaður átt þú sérstaklega eftir að lenda í þessu t.d að þurfa að borga þrefalt til fjórfalt verð fyrir það sem hlutir raunverulega kosta og  allskonar svindl eru mjög algeng í ferðamannaiðnaðinum, nokkur algeng svindl ganga nokkurn veginn svona:

Leigubílstjórar sérstaklega í kringum flugvelli telja þér trú um að þú þurfir að staðfesta komu þína á hótelið þitt með fyrirvara og svo er þér keyrt á ferðaskrifstofu þar sem þér er leift að hringja í hótelið þitt (eða það er það sem þú heldur) í rauninni ertu að hringja í vin leigubílstjórans sem segir þér að þú sért ekki með bókað herbergi á hótelinu þínu, síðan er þér keyrt á hótel sem þeir velja og fá sölulaun fyrir. Leigubílstjórinn segist kannski vera villtur og fer á ferðaskrifstofu sem segir þér að hótelherbergið þitt sé tvíbókað, eða það sé í slæmu hverfi og hann viti um betra hverfi. Margir eru líka með svona samninga við verslanir og bjóða þér lægra fargjald (sem er í raun ekki lægra) í skiptum fyrir að fara og kíkja inni eina verslun, í staðin fá þeir annaðhvort fatnað eða sölulaun. Þú hugsar kannski...ég þarf bara að stinga hausnum inn og þá er ég búin að hjálpa einhverjum.....en það er ekki þannig því miður og þú átt eftir að upplifa þig eins og dádýr í krókódílagarði í verslunum þarna, sölumennskan og  æsingurinn er svo mikill.

Spilling er líka algeng þarna og þá er löggæslan engu betri. Ef þú lendir í einhverju veseni, ert rændur eða eitthvað er löggan seinasta manneskjan sem þú vilt tala við, því fylgir bara eylíf skriffinnska og vesen og lítið gerist þér í hag, besta er bara að sætta sig við að hluturinn er farinn og kaupa nýjan. Við lentum t.d. í því að lögga stoppaði okkur við gatnamót og bannaði okkur að keyra um götuna, bílstjórinn sagði þá...ef þig látið hann fá smá pening getur hann opnað veginn fyrir okkur. Vegurinn var í raun ekki lokaður heldur sá löggan okkur og sá þar tækifæri til að græða pening.

Vertu ákveðinn og ekki hlusta á neinn sem segist vilja vera "vinur" þinn eða gera þér greiða. Alltaf spyrja þrjár manneskjur til vegar og ekki treysta neinum sem kemur upp að þér og segir...fylgdu mér.. þeir eru yfirleitt á höttunum eftir peningum. Helst ekki vera úti á ferli eftir kl 11. Ef þú ert að ferðast um norð-vestur Indland næst Pakistan þá er sérstaklega ekki vel liðið kossaflens og svoleiðis. Ef þú ert kona skaltu klæðast buxum eða pilsum fyrir neðan hné, ekkert gegnsætt og bolirnir verða að ná niður fyrir axlir og ekki sína brjóstaskoru nema þú viljir verða fyrir óþægilegu augnliti og einstaka blótsyrðum.

Það versta við þetta allt saman er að þegar þú hittir heiðarlegt og góðhjartað fólk sem raunverulega vill hjálpa þér þá bregst maður við með mikilli tortryggni en það er mjög mikilvægt að gleyma ekki því að upp til hópa eru Indverjar gott fólk  og þú átt væntanlega eftir að hitta nokkra þannig þegar þú ert við það að reita af þér hárið og þú átt eftir að muna eftir þeim löngu eftir að pirringurinn er búinn.  Vona að þetta eigi eftir að nýtast einhverjum sem eru að fara til Indlands og endilega kaupið lonely planet bókina, hún er alveg bráðnauðsynleg.

 

 


Ef einhver gerir Thriller betur en Jacksson þá er það þessi!

Núna er ég búin að vera veik heima í nærri því viku og það gefur mér ómældan tíma til að gera ekki neitt eins og að spila tölvuleiki, hanga á netinu, fara yfir alla gömlu geisladiskana mína (fann nokkrar perlur) drekka 3 kippur af kókómjólk og horfa á allar Bollywood myndirnar sem ég keypti úti, sumar eru reyndar alveg drepfyndnar. Hér er smá sýnishorn.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband